Upprifjun á grunnatriðum rafmagnsfræðinnar, lögmál Ohms og aflútreikningur. Raflagnir, val á leiðurum, tengingar, bilanaleit og viðgerðir. Farið í þörf fyrir öryggi og tilgang þeirra. Viðgerðir á rafkerfum með lóðningum, krumptengjum og herpihólkum. Almennur rafbúnaður svo sem segulrofar (Relay) og aðrir rofar.
RAVV2RV03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu mæli- og prófunartækjum sem notast við rafkerfi vélhjóla
þörf og tilgangi varbúnaðar í rafkerfum
almennum rafbúnaði s.s. segulrofum og öðrum rofum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna viðnám og straum í mótstöðum sem tengdar eru á mismunandi hátt
mæla og prófa segulliða og aðra rofa
framkvæma skipulega bilanaleit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera við bilanir í raflögnum með viðurkenndum tengibúnaði
gera við rafkerfi með lóðningum, krumptengjum og herpihólkum
nýta íhluti til viðgerða á rafkerfum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.