Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1446847492.8

    Gerð og virkni diska- og skálahemla
    BRHV2HH02
    None
    Bremsu- og hjólabúnaður vélhjóla
    hemlakerfi, hjólabúnaður
    for inspection
    2
    2
    AV
    Farið yfir gerð og virkni hjólhemla bæði diska- og skálahemla. Skoðuð eru hemlakerfi og íhlutir svo sem höfuðdælur og bremsuklossar. Farið yfir aðferðir við að taka hjólhemla sundur og hvernig skal meðhöndla íhluti fyrir samsetningu. Farið yfir fyrirkomulag á slöngum og röralögnum með tilliti til hreyfinga á hjólabúnaði og ýmsar gerðir þéttinga á hemlarörum. Kenndar aðferðir við lofttæmingu vökvakerfa og hvernig á að mæla kast á bremsudiskum. Farið yfir skyldur og ábyrgð viðgerðarmanna vegna umferðaröryggis.
    BRHV2FH02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kröfum til hemla í reglugerðum
    • vökvahemlakerfi og íhlutum þeirra
    • kröfum til vökvalagna og hemlavökva
    • sérverkfærum og tækjum sem eru notuð við hemlaviðgerðir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita mismunandi aðferðum við að lofttæma hemlakerfi
    • endurnýja hemlavökva
    • mæla kast á bremusdiskum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lýsa virkni vökvahemlakerfa og íhlutum þeirra
    • taka sundur hjólhemla meta ástand íhluta og setja saman aftur
    • meta ástand vökvalagna og endurnýja rör og slöngur
    • gera ítarlega hemlaprófun
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.