Farið yfir gerð og byggingarlag grindar vélhjólsins, fyrirkomulag á fram og afturgafli, gaffalhalla og tilheyrandi legur og fóðringar Farið yfir grunngerðir fjöðrunarbúnaðar svo sem gormafjöðrun, blaðfjöðrun, vindustangir, loft- og vökvafjöðrun einnig línulega og ólínulega fjöðrun. Farið í mælingar á slagi í hjólalegum og legum/fóðringum í fram og afturgaffli. Farið yfir herslu á legum í framgaffli.
Að minnsta kosti 5 einingar í vélfræði/vélstjórn
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi byggingarlagi vélhjóla
mismunandi fjöðrunareiginleikum vélhjóla
aðferðum við að mæla slag í göfflum og hjólalegum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mæla slag á hjólalegum og slag í göfflum
herða legur í framgaffli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta ástand fjöðrunarbúnaðar
skipta um hjólalegur og pakkdósir í hjólum
skipta um legur og fóðringar í göfflum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.