Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1446847973.66

    Dempun í fjöðrunarkerfum vélhjóla
    FJÖV2SD02
    None
    Stýri og fjöðrun vélhjóla
    demparar, samþjöppun, sundurslag
    for inspection
    2
    2
    AV
    Farið er yfir fræðilegan grunn dempunar í fjöðrunarkerfum vélhjóla. Farið ítarlega í mismunandi eiginleika dempunar við samþjöppun og sundurslag fjöðrunar og stillingar þar á. Farið yfir mismunandi byggingarlag dempara og mismunandi fyrirkomulag á forðabúri og gasfyllingu á dempurum. Farið yfir mismunandi seigju demparaolíu og hvernig skipt er um olíu á dempurum, einnig mikilvægi þrifa og hreinlætis við samsetningu dempara.
    FJÖV2FA03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi réttrar dempunar vélhjóla með tilliti til aksturseiginleika
    • mismun á dempun við samþjöppun og sundurslag
    • aðferðum til að meta ástand dempara
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • endurnýja pakkdósir og fóðringar
    • stilla fjöðrun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta ástand ástand dempara
    • skipta um olíu á dempurum
    • innstilla dempun við samþjöppun og sundurslátt
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.