Haldið er áfram að kenna samkvæmt námsskrá til undirbúnings almenns ökuprófs. Helstu þættir námsefnisins eru: Bíllinn og umhirða hans, mannlegi þátturinn, vegurinn og umhverfi hans, umferðarmerki, umferðarlög, vegakerfið, umferðarhegðun og akstur við mismunandi aðstæður. Unnið er markvisst að undirbúningi nemenda fyrir almennt ökupróf. Haldið er áfram með notkun á Netinu við öflun á fræðsluefni og verkefnum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flokkum ökuréttinda og takmörkum þeirra
helstu refsingum við umferðarlagabrotum
reglum um gerð og búnað ökutækja
reglum um öryggisbúnað og skoðun ökutækja
mikilvægi mannlega þáttarins í umferðinni
umferðarmerkjum, öðrum umferðarmerkingum og umferðarstjórn
áhrifum áfengis og annarra vímuefna á dómgreind og aksturshæfni
hættum sem fylgja akstri við mismunandi aðstæður
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina frá helstu flokkum ökuréttinda og aldursmörk sem þeim fylgja
greina frá helstu refsingum við umferðalagabrotum
lýsa kröfum sem gerðar eru til öryggisbúnaðar ökutækja
átta sig á mannlegum takmörkunum í umferðinni
varast notkun áfengis og annarra vímuefna í tengslum við akstur ökutækja
greina frá hættum sem fylgja akstri við mismunandi aðstæður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
haga sér með ábyrgum hætti í umferðinni hvort heldur er sem gangandi eða akandi vegfarandi
fara eftir og virða umferðarlög og umferðarreglur
taka tillit til annarra vegfarenda og sýna þeim tilhlýðilega varúð
forðast að valda öðrum vegfarendum óþægindum og hættu í umferðinni
undirbúa bóklegt og verklegt ökunám
Námsmat fer fram með símati byggðu á forsendum hvers og eins nemanda