Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1450702152.24

    Algebra, jöfnur og rúmfræði
    STÆR1IB05
    41
    stærðfræði
    Algebra, flatarmál og rúmmál, jöfnur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Seinni undirbúningsáfangi í stærðfræði. Helstu viðfangsefni áfangans eru algebra, jöfnur, þríhyrningar og rúmfræði. Lögð er áhersla á að þjálfa nemendur í öguðum vinnubrögðum og efla sjáfstraust þeirra gagnvart stærðfræði.
    STÆR1IA05 eða C í grunnskólaeinkunn í stærðfræði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Veldareikningi með heiltölu veldisvísum
    • Grunnatriðum í algebru og algebrubrotum
    • Hornafræði
    • Þríhyrningum, einshyrndum þríhyrningum og rétthyrndum þríhyrningum
    • Hæðum, helmingalínum, miðlínum og miðþverlum í þríhyrningum
    • Metrakerfinu og rúmfræði einfaldra tvívíðra og þrívíðra forma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota veldareglur til að einfalda algebrustæður
    • Leysa fyrsta stigs jöfnur með einni óþekktri stærð og jöfnuhneppi með tveimur óþekktum stærðum
    • Setja upp einfaldar jöfnur og leysa þær
    • Reikna hornastærðir í einföldum flatarmyndum
    • Nota reglu Pýþagórasar og einhyrnda þríhyrninga til að reikna óþekktar hliðar og línur í þríhyrningum
    • Vinna með jöfnu beinnar línu
    • Reikna flatarmál, ummál, rúmmál og yfirborð einfaldra forma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skrá lausnir sínar skipulega
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
    • Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.