Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1450702564.0

    Handmennt
    HAND2HS05
    2
    handmennt
    Handmennt og saumur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum rifja nemendur upp og æfa grunnvinnsluaðferðir í prjóni, hekli og a.m.k. tveimur öðrum gerðum handverks. Nemendur hanna eitt stórt lokaverkefni í greininni, þar sem tengd verða saman ólíkar handverksaðferðir. Unnin verður verkefnamappa, þar sem gert er grein fyrir hvorutveggja, hönnunar og framleiðslu ferli verkefnisins. Nemendur þurfa að temja sér vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Vettvangsferðir og sýning á verkefnum nemenda.
    HAND1HY05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi möguleikum í prjóni, hekli, útsaumi og ýmsum textílaðferðum
    • mikilvægi frágangs á eigin verkefnum
    • tengslum milli ólíkra handverksaðferða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með grunnaðferðir í ýmsum textíl
    • geta tengt saman ólík handverk og komið þeim frá sér sem einni heild
    • semja vinnulýsingu sem er nothæf utanaðkomandi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leita nýrra hugmynda til að iðka handmenntir
    • geta yfirfært hugmynd sína yfir í unninn hlut
    • útfæra verkefnin eftir vinnulýsingu
    • vanda frágang og vinnubrögð
    Mæting og virkni. Skráning og vinnumappa sem gera grein fyrir vinnsluferli eigin hönnunar og handverks. Matið byggir á umfangi, erfiðleikastigi, vandvirkni og vönduðum vinnubrögðum.