Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1450706767.5

    Fylgihlutir
    HAND2FY05
    1
    handmennt
    Fylgihlutir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum hanna nemendur fylgihluti, t.d. töskur, klúta, skartgripi, höfuðföt og margt fleira. Nemendur nota hina ýmsu tækni innan textílgreinarinnar t.d. prjón, saum, hekl, leðurvinnu, o.fl. Ætlast er til að nemendur skoði fylgihluti út frá heildarútliti t.d fatnaði og skóm.
    FATA1SH05 og/eða HAND2HS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þýðingu fylgihluta sem hluta af alklæðnaði
    • fylgihlutum frá ýmsum tímabilum í sögunni
    • hönnun fylgihluta út frá eigin forsendum
    • fylgihlutum með notagildi í huga
    • notkun á pappír og fleira til að móta fylgihlut
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera tilraunir með mismunandi form
    • geta nýtt sér hugmyndafræði úr sögunni til gagnasöfnunar
    • geta unnið tilraunavinnu út frá gagnasöfnun
    • geta mótað nothæfan fylgihlut úr textíl
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta hannað sinn eigin fylgihlut
    • geta nýtt sér hinar ýmsu aðferðir í textílmennt til að setja saman fylgihlut
    • geta samið og útbúið einfalda en vandaða verklýsingu
    • viðhafa vönduð vinnubrögð
    Símat: gagnasöfnun, úrvinnsla, mótun, prufuhlutur og/eða tilraunavinna, auðskilin vinnulýsing, fullunnin fylgihlutur, umfang hans og frágangur.