Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1452179958.53

    Matur og menning í fjarlægum löndum og innlend matarmenning
    MOME1FL05(12)
    None
    Matur og menning
    Matur og menning í fjarlægum löndum
    í vinnslu
    1
    5
    12
    Í þessum áfanga kynnast nemendur matargerð í fjarlægum menningarheimum auk þess sem þeir fræðast um íslenska matarmenningu. Ætlast er til að nemendur nái tökum á matreiðslu ýmissa framandi rétta auk þess sem áhersla er lögð á hlutverk gestgjafans í matarboðum. Nemendur annast innkaup á hráefni með hollustu og hagkvæmni í huga og laga uppskriftir að vöruúrvali. Nemendur kynnast þeim menningarheimi og þeirri samfélagsgerð sem maturinn tengist, m.a. með því að horfa á sjónvarpsþætti og kvikmyndir sem tengjast matargerð og með því að nýta sér upplýsingar af veraldarvefnum. Nemendur vinna stuttar kynningar á þeim löndum eða svæðum sem til umfjöllunar eru hverju sinni. Þau lönd sem tekin eru fyrir í áfanganum eru m. a. Ísland, Pólland, Tyrkland, Indland, Kína, Mexíkó og Íran.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • matarmenningu í völdum fjarlægum samfélögum
    • innlendri matarmenningu
    • ólíkum siðum við fæðuöflun og matargerð
    • mikilvægi hollrar næringar fyrir heilbrigðan líkama.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • matreiða framandi rétti
    • vinna með ýmiss konar gögn við matreiðslu, s.s. matreiðslubækur og hvers kyns áhöld og tæki
    • greina á milli ólíkra gerða matseldar, s.s. suðu, steikingar, ofnbökunar o.s.frv.
    • greina á milli ólíkra menningarheima út frá ólíkum listafurðum og matseld
    • ástunda hagkvæm og umhverfisvæn innkaup til heimilis.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla almennri þekkingu sinni í umræðum og stuttum kynningum ...sem er metið með... ýmiss konar kynningarverkefnum
    • miðla leikni sinni við matseld ...sem er metið með... matseld og smökkun
    • auka skilning sinn á framandi menningaheimum og eigin menningu ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum yfir önnina
    • leggja mat á næringargildi og hollustu matvöru ...sem er metið með... ýmsum verkefnum yfir önnina
    • haga innkaupum eftir sjónarmiðum um hollustu, sjálfbærni og hagkvæmni ...sem er metið með... verkefnum í tengslum við matarinnkaup.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandi fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvar hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru kynningarverkefni, innkaupaverkefni og matreiðsla.