Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1453821607.62

    Hugmyndavinna og ferli
    MYNL1HU05(FB)
    12
    myndlist
    hugmyndavinna, skapandi hugsun, sköpunarferli, þróun hugmynda
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    FB
    Áhersla er lögð á sjálfstæða sköpun og skilning á þróun hugmynda og myndrænu ferli. Notkun skissubókar við þróun og úrvinnslu hugmynda. Teikning, grafískar aðferðir, bókverk, myndræn ferli af ýmsu tagi.
    Undanfari: SJÓN1EU05, SJÓN1LS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • aðferðum við að fá hugmyndir og vinna úr þeim svo sem að afla sér efnis, flokka það og nýta við hugmyndavinnu eða fá hugmynd og styrkja hana með efnisöflun
    • kunna skil á ýmsum aðferðum við fjölföldun svo sem grafískum aðferðum
    • hugtökum tengdum hugmyndavinnu, ferilvinnu og þrykki
    • sköpunarferlinu og helstu vinnuaðferðum myndlistarmanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta sér helstu aðferðir við hugmyndavinnu
    • nota skissubók við öflun og úrvinnslu hugmynda
    • nota þrykk/grafískar aðferðir við myndsköpun
    • geta notað stafræna tækni við efnisöflun og úrvinnslu hugmynda
    • vinna sjálfstætt að eigin sköpun með þeirri aðferð sem hann kýs og hentar hugmyndinni
    • geta tjáð sig um eigin verk og annarra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja hugmyndir sínar fram í skissuformi
    • nýta sér umræddar skissur við myndsköpun sína, velja úr hugmyndum, þróa þær og setja fram sem myndrænt ferli með því að hagnýta einhvern þeirra miðla sem unnið er með í áfanganum, svo sem þrykk eða aðrar grafískar aðferðir
    • meta eigin hugmyndir út frá listrænum forsendum og velja úr þeim þær sem best henta til frekari úrvinnslu
    • þróa eigin hugmyndir og setja þær fram í formi myndræns ferlis eða bókverks
    Kennari leggur mat á ástundun og vinnubrögð nemandans. Hann metur skilning hans á markmiðum áfangans út frá skissubók og bókverkum eða öðrum verkum. Vinnubrögð, virkni og listrænt gildi eru sömuleiðis lögð til grundvallar námsmati.