Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á að nemendur kynni sér ferðalög til annarra landa, hvernig hægt er að komast á áfangastað og hvað svæðið býður upp á fyrir ferðamenn. Nemendur velta fyrir sér umhverfinu, menningunni og fólkinu í landinu. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við það að verða sjálf ferðamenn sem ferðast til annarra landa í framtíðinni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtakinu ferðaþjónusta
Mikilvægi þess að geta bjargað sér á öðru tungumáli
Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
Ferðalögum til annarra landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nýta sér upplýsingar í umhverfinu, s.s. á flugvöllum og öðrum stöðum sem tengjast ferðaþjónustu
Kynna sér ferðaáætlanir, hótelupplýsingar og upplýsingar um áfangastaði á veraldarvefnum
Tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
Taka þátt í umræðum
Lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Ferðast um heiminn
Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin færni
Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
Lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar
Hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá