Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku á fjölbreyttan hátt eftir stöðu hvers og eins. Nemendur munu vinna verkefni og lesa texta sem tengjast nokkrum merkum atburðum í mannkynssögunni. Notað verður aldursmiðað efni við hæfi hvers og eins sem gefur innsýn í mannkynssöguna. Áhersla er á að námið verði áhugahvetjandi og að nemendur geti í leiðinni fræðst um og rifjað upp merka atburði í mannskynssögunni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtakinu mannkynssaga
Að sagan hefur áhrif á okkur öll
Ólíkum æviskeiðum manna
Mikilvægi tjáningar og hlustunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að reynsla forfeðra okkar getur nýst okkur í nútímanum
Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
Að hægt er að nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
Tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
Taka þátt í umræðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Átta sig á mikilvægi þess að kunna skil á helstu þáttum mannkynssögunnar
Virða reynslumeira og eldra fólk
Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Taka þátt í umræðum um sögulega atburði
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá