Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku í gegnum tónlist og dægurlagatexta. Áhersla verður á klassíska, popp- og rokktónlist í bland við það sem er vinsælast hverju sinni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hvað textaskáldið er að segja í textunum. Nemendur bæta þannig jafnt og þétt við orðaforða og hugtakaskilning sinn.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hvaða sögu textaskáldin eru að miðla hverju sinni
Að oft má tengja saman áhugamál og nám
Sköpun í formi ljóðagerðar og textasmíðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Hlusta á og vinna með mismunandi texta og ljóð
Virða tónlistarsmekk annarra
Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi tegund tónlistar
Taka þátt í umræðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Efla orðaforða sinn
Átta sig á að margir textar hafa ákveðinn boðskap
Spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á
Láta skoðanir sínar í ljós
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá