Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með tölvuleiki sem kennarinn velur í samráði við nemendur og aðra fagaðila sem þekkja vel til. Nemendur skiptast á að spila leikina en allir fylgjast með og öll ný orð og hugtök eru skráð niður og lögð á minnið. Kennarinn velur leikina með það í huga að nemendurnir þurfi bæði að nýta sér ritun og lestur til þess að komast áfram í leiknum og samhliða eflir nemandinn ensku kunnáttu sína.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Þeim orðaforða sem kemur fram í tölvuleikjunum
Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
Kostum þess að vera vel læs á enska tungu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Fylgja fyrirmælum sem koma fram í tölvuleikjum
Nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
Taka þátt í umræðum
Lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin hæfni í tölvuleikum
Efla eigið tölvulæsi
Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í tölvuleikjum
Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
Lesa í leik- og samskiptareglur
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá