Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Orðaforði sem tengist þjónustustörfum er hafður að leiðarljósi í þeim tilgangi að styrkja þá nemendur sem vinna eða munu hugsanlega vinna við þjónustustörf í framtíðinni. Brotið verður upp hefðbundið mynstur í enskukennslunni með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Unnið verður með ýmis hugtök sem tengjast þjónustu og þjónustustörfum á fjölbreyttan hátt.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Að enskukennsla getur verið fjölbreytt og áhugamiðuð
Fjölbreyttum hugtökum sem tengjast þjónustustörfum
Mikilvægi þess að geta tjáð sig á enskri tungu þegar unnið er við þjónustustörf
Að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
Að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að bjarga sér í ensku við ýmis þjónustustörf
Að koma skoðunum sínum á framfæri
Nálgast viðfangsefnin á mismunandi hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Eiga samskipti við enskumælandi einstaklinga í gegnum ýmis þjónustustörf
Nýta sér fjölbreyttar nálganir í námsferlinu
Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar úr umhverfinu
Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Leggja mat á árangur sinn og möguleika sína
Hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir á ensku
Leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá