Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem grunnþátturinn heilbrigði og velferð verður hafður að leiðarljósi. Áhersla verður á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði, en einnig verður samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis skoðað og rætt. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtökunum heilbrigði og velferð
Mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
Hvernig lýðheilsa sögupersóna birtist í bókmenntum
Hugtökum sem tengjast heilbrigði og velferð
Samkennd
Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Meta og greina heilbrigði og velferð í textum eða upplýsingum
Vinna með öðrum
Taka tillit til annarra
Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Sýna samkennd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Auka eigið heilbrigði og velferð
Vera meðvitaður um styrkleika sína
Að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Tileinka sér jákvætt hugarfar
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá