Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455889140.37

    Íslenska með áherslu á lýðræði og mannréttindi
    ÍSLE1LM03
    78
    íslenska
    Læsi, lýðræði, mannréttindi og bókmenntir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og grunnþátturinn lýðræði og mannréttindi verður hafður að leiðarljósi. Notaðar verða aldursmiðaðar bókmenntir sem gefa fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks. Sjálfshjálparbækur, íslensk tónlist og fjölbreytt verkefni verða nýtt í kennslunni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgaranna til þátttöku í að móta samfélag sitt og hafa áhrif. Gert er ráð fyrir því að nemendur læri um lýðræði í lýðræði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hugtökunum lýðræði og mannréttindi
    • Fjölbreytileika lýðræðis og mannréttinda
    • Samhenginu á milli réttinda og skyldna
    • Að í lýðræðisríki eiga borgarnir að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
    • Að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
    • Mikilvægi þess að eiga möguleika á því að velja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
    • Að beita gagnrýnni hugsun
    • Virða skoðanir annarra
    • Taka þátt í umræðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi
    • Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • Átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
    • Láta skoðanir sínar í ljós
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá