Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við lífið í framtíðinni, m.a. að efla samskiptalæsi og umhverfislæsi í þeim tilgangi að þeir verði virkari og hæfari þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtakinu læsi í víðu samhengi
Mikilvægi tjáningar og skynjunar
Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
Mismunandi tjáskiptaleiðum
Mikilvægi lesturs og bókmennta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
Tjá sig með fjölbreyttum leiðum
Vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
Taka þátt í umræðum
Nýta sér leiðréttingarforrit og ýmiss hjálpargögn til verkefnavinnu, s.s. talgervla og tjáskiptaforrit
Lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
Lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér læsi í víðu samhengi
Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
Tjá eigin skoðanir
Lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá