Farið er yfir hugtökin kraftur og þyngd. Fjallað er um eðli þeirra og áhrif í ökutækjum, vogararma og snúningsvægi, núning og núningsstuðul, hreyfiorku og hemlunarafköst. Skoðuð eru hemlakerfi og íhlutir: höfuðdælur, hjólhemlar, bæði diska- og skálahemlar, hjálparbúnaður (þrýsti- og hemlunarstjórnun o.fl.), rör og slöngur. Áhersla er lögð á skyldur og ábyrgð viðgerðarmanna vegna umferðaröryggis. Farið er yfir aðferðir við að taka hjólhemla í sundur og hvernig hentugt er að hreinsa íhluti og meðhöndla fyrir samsetningu. Lögð er áhersla á skoðun og mat á hemlahlutum. Farið er yfir slöngu- og röralagnir og gerð þéttinga á hemlarörum. Farið yfir ýmsar aðferðir við lofttæmingu vökvakerfa. Kynnt er notkun hemlaprófunartækis. Nemendur fá fræðslu um geymslu og förgun efna og hvað ber að varast varðandi mengun frá hemlabúnaði. Farið er yfir virkni höfuðdælu og stjórnbúnaðar í vökvahemlakerfum, áhersla lögð á eftirfarandi þætti: þrýstijöfnun, hleðsluskynjun þrýstitakmörkunar og viðvörunarbúnað. Gerð verkefni um prófun og stillingu. Nemandinn fær þjálfun við hemlunarprófun. Farið í að meta slit og ástand skála og diska og æfingar í að renna diska.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kröfum til hemla í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
þeim kröftum sem eru virkir í ökutæki við hemlun
algengum vökvahemlakerfum og íhlutum þeirra
ýmsum gerðum stöðuhemla
höfuðdælum og stjórnbúnaði í vökvakerfum: þrýstijöfnun, hleðsluskynjun, þrýstitakmörkunar- og viðvörunarbúnaði
tækjum sem notuð eru til að renna hemladiska
vinnubrögðum við að þvo/hreinsa íhluti og meðhöndla fyrir samsetningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna út hröðunarkrafta, núnings- og hemlunarafköst
renna hemladiska
gera viðeigandi stillingar í hemlakerfi, þ.m.t. stöðuhemlum
gera ítarlega hemlaprófun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa virkni algengra vökvahemlakerfa og helstu íhluta þeirra
lýsa virkni stöðuhemla
lýsa virkni og meta ástand og virkni höfuðdælu og stjórnbúnaðar vökvahemlakerfis
lýsa virkni og meta ástand og virkni þrýstijöfnunar, hleðsluskynjunar, þrýstitakmörkunar- og viðvörunarbúnaðar vökvahemla
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.