Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
NMOD3MG02(NB)
NB
Nemendur eru þjálfaðir í að hanna veiðarfæri og gera líkön af þeim í hentugum mælikvarða fyrir tankprufu.
NITN1HT03 og NFNG3IR05 samhliða
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- verkferlum við módelgerð
- stærð og gerð upprunalegs veiðarfæris
- væntanlegri notkun módels (tankprófanir, staðfesting á virkni eða heðgun veiðarfæris, sýning, skraut).
- efnisvali í módel
- útreikingum á stærð módels útfrá veiðarfæri: Skurðarreikningar, fellingareikningur og flatarmálsreikningur neta
- öllum veiðarfærum sem notu eru til módelgerðar
- módelprófunum veiðarfæra
- verklagi við prófanir á módelum í tilraunatanki, kostum þeirra og takmörkunum
- mælingum, skráningum á mælingum, túlkunum og framsetningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrifa verkferli fyrir módelgerð og fylgja áætlun
- lesa teikningar og/eða mæla upp veiðarfæri og teikna
- haga verklagi í samræmi við væntanlega notkun módels
- velja rétt efni í módel með hliðsjón af eiginleikum og notkun
- ákvarða mælikvarða módels og reikna stærðir á öllum hlutum þess; skurði, fellingar og flatarmáli neta
- nota öll verkfæri sem algeng eru til módelgerðar
- setja upp prófanir á módeli í samræmi við notkun veiðarfæris og krafna um upplýsingar sem fá skal fram
- aðlaga módel að athugunarsvæði (tanki). Stilla upp módeli í tilraunatanki og framkvæma prófanir
- nota verkfæri og mælitæki
- skrá mælingar, lesa úr gögnum og setja fram á skýran og skilmerkilegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rökstyðja val sitt á vinnubrögðum og vali á efnum
- meta eiginleika, hegðun og virkni veiðarfæris í fullri stærð út frá túlkun á prófunum módels og rökstyðja ályktanir
- gera sér og öðrum grein fyrir kostum módelprófana og takmörkunum (óvissu) þeirra
- gera sér og öðrum grein fyrir kostnaði og tíma við módelprófanir
Áfanganum lýkur með prófi og mati á verkefnum gerðum á önninni.