Nemendur þjálfast í að teikna veiðarfæri á tölvu. Farið er yfir allar reglur sem gilda um teiknun veiðarfæra. Teiknaðar eru mismunandi gerðir veiðarfæra en einkum er lögð áherslu á að teikna vörpur og nætur.
NITN1HT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
viðmót og virkni forrita sem notuð eru til veiðarfæra-teikninga, almenn og sérhæfð
yfirfæra staðal veiðarfærateikninga, ÍST 106, á tölvuteikningu
táknum til að skilgreina ein-staka hluta neta í veiðarfærum
aðferðum til mælinga á línulengdum neta
reikningsaðferðum hlutfalla til að fá réttar breiddir og lengdir á veiðarfærateikningar
reglum um miðjusetningu teikninga
töflum sem sýna mismunandi halla á útlínum teikninga í samræmi við skurð neta
útfærslu afstöðumynda á teikningum
grunnatriðum þrívíðrar teikningar og teikniforrits
prentskipunum fyrir mismunandi stærðir pappírs
reglum um frágang, vistun og breytingar teikninga
hugtökunum verkefni, verkþáttur, verkþáttaröð og efnislisti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota forrit til veiðarfærateikninga
nota viðeigandi staðla við teiknivinnu og stöðluð tákn úr táknasafni til merkinga. Merkja heiti einstakra hluta inn á teikningar þar sem við á
setja tákn á teikningar á réttum stöðum.
teikna mynd sem sýnir viðeigandi línu-lengdir. Mæla réttar lengdir á línum eftir teikningum
nota reikniaðferðir við teiknivinnu. Reikna stærðir á stykkjum og heildarstærð teikninga í réttum hlutföllum með tilliti til mælikvarða
miðjusetja teikningar og texta á pappír
nota töflur til að sýna viðeigandi halla eftir gerðum skurða. Meta hvort mismundi hlutar teikninga eru með sama halla í skurði
teikna afstöðumyndir veiðarfæra frá öllum hliðum
geta snarað tvívíðri mynd í þrívíða
setja upp prentara í viðeigandi vinnuham. Meta frágang og gæði prentaðra teikninga
setja upp verkþáttaröð eftir teikningu. Meta efnisnotkun hvers verkþáttar og gera efnislista
framleitt veiðarfæri samkvæmt eigin teikningum og verkefnislýsingum
gera efnis-, tíma- og kostnaðaráætlun eftir teikningum og efnislistum.
meta efnisnotkun hvers verkþáttar og gera efnislista
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta gæði teikninga og verkefnislýsinga sem fyrirmæli til að vinna eftir
miðla upplýsingum til samstarfsmanna og viðskiptavina með teikningum og útskýra verkáætlun.
Áfanganum lýkur með prófi og mati á verkefnum gerðum á önninni.