Þessi áfangi er verklegur íþróttaáfangi með blakþema. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum og blakspili auk þess sem lögð verður áhersla á grunnþjálfun, styrk og liðleika.
HEIL1ÞH03 og HEIL1HL03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu blakreglum
algengum aðferðum við upphitun fyrir blak
fjölbreyttum aðferðum til að þjálfa þrekþætti í blaki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota blak sér til ánægju og heilsueflingar
skipuleggja upphitun og æfingatíma með blak í huga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Viðhalda og bæta líkamlega heilsu með blakiðkun
Leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
Taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams og heilsuræktar
Glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams og heilsurækt