Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459855265.67

    Jóga 1
    ÍÞRÓ2JÓ02
    49
    íþróttir
    Jóga
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er verklegur. Nemendur læra jógastöður, slökunaraðferðir, hugleiðslutækni og öndunaræfingar og jafnframt læra þeir um hvaða áhrif jóga hefur á heilsu manna. Einnig er kynnt sú heimspeki sem jóga byggir á, þær lífsreglur (yama og niyama) sem jóga felur í sér.
    HEIL1ÞH03 og HEIL1HL03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir vellíðan
    • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
    • mismunandi jógastöðum
    • mismunandi öndunaræfingum
    • þeim lífsreglum sem jóga byggir á
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum jógastöðum
    • beita mismunandi slökunaraðferðum
    • beita mismunandi öndunaræfingum
    • sýna aukna einbeitingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja og liðka líkamann
    • viðhalda og/eða bæta líkamlega og andlega heilsu
    • lifa samkvæmt einhverjum af lífsreglum jóga
    Námsmat byggist á fjölbreyttum verkefnum sem metin eru jafnt og þétt yfir önnina þar sem nemendur þurfa að meta eigin skilning, upplifun og framþróun. Engin skrifleg lokapróf eru haldin.