Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459858326.56

    Almenn líkamsrækt
    ÍÞRÓ2NF02
    48
    íþróttir
    Líkams- og heilsurækt
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er að mestu leyti verklegur. Í áfanganum eru tvær megin áherslur. Annars vegar að nemendur skipuleggi þjálfun sína sjálf og fái tækifæri og aðstöðu til að fara eftir sinni eigin áætlun. Hins vegar að nemendur fái innsýn í og tækifæri til að prófa mismunandi möguleika til líkamsræktar. Hluti áfangans er kenndur í Sundhöll Selfoss, líkamsræktarstöðvum og öðrum íþróttamannvirkjum á svæðinu.
    HEIL1HL03 og HEIL1ÞH03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvernig langtímaáætlun er uppbyggð
    • Að búa til nákvæmar og rétt uppbyggðar tímaáætlanir
    • Hinum ýmsu hugtökum sem koma fyrir við skipulagningu þjálfunar eins og upphitun, aðalhluti, niðurlag og markmið.
    • Hvaða möguleikar eru til líkamsræktar í nærumhverfinu.
    • Hvað fjölbreytt regluleg hreyfing er mikilvæg fyrir heilbrigði hvort sem er líkamlega, andlega eða félagslega heilsu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fara eftir eigin tímaáætlun
    • fjölbreyttri þjálfun þols, styrks og liðleika
    • þjálfun, hreyfingu og virkni, sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    • skipuleggja eigin þjálfun og búa til námkvæmar tímaáætlanir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja og framkvæma eigin þjálfun
    • geta tileinkað sér þá möguleika til hreyfingar sem í boði eru í nánasta umhverfi
    • taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams- og heilsuræktar
    • geta meðvitað tileinkað sér hreyfingu sem heilsuávinning til framtíðar
    Námsmat byggir á þeim verkefnum sem nemendur skila, auk þess sem mæting og virkni er metin í tímum. Ekki er skriflegt próf í áfanganum.