Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1459931971.62

    Íþróttir- knattspyrna
    ÍÞRÓ2KN02
    53
    íþróttir
    knattspyrna
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Þessi áfangi er verklegur íþróttaáfangi með knattspyrnuþema. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum og spili auk þess sem lögð verður áhersla á grunnþjálfun, styrk og liðleika.
    HEIL1ÞH03 og HEIL1HL03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu knattpsyrnureglum
    • algengum aðferðum við upphitun fyrir knattspyrnu
    • fjölbreyttum aðferðum til að þjálfa þrekþætti í knattspyrnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota knattspyrnu sér til ánægju og heilsueflingar
    • skipuleggja upphitun og æfingatíma með knattspyrnu í huga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • viðhalda og bæta líkamlega heilsu með knattspyrnuiðkun
    • leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
    • taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams og heilsuræktar
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams og heilsurækt
    Símat sem byggist á mætingu, virkni, getu, framförum og skriflegum verkefnum.