Meginefni áfangans er námstækni, sjálfsstyrking og einstaklingsmiðuð hvatning. Helstu efnisþættir eru fjölmargar hliðar námstækni eins og tímaskipulag, glósu- og lestrartækni. Mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin heilsu og þá stjórn sem haft er á eigin heilsu og velgengni.
Aðal áhersla áfangans er mikið utanumhald kennara, einstaklingsmiðuð þjónusta gagnvart nemendum og mynda stuðningshóp fyrir nemendur í brottfallshættu. Ásamt þjálfun nemenda í að taka alhliða ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Námstækni sem tæki til að ná árangri í námi og starfi.
Markmiðssetningu.
Heilsufari í víðum skilningi, eins og næringu, hreyfingu, andlegri líðan, hugarfari og svefni. Hvernig heilsufar tengist sjálfsmynd og gengi í daglegu lífi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita góðri námstækni.
Setja sér markmið.
Taka ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi.
Þekkja eigin styrkleika og veikleika.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hafa sjálfstraust í verkefnum daglegs lífs.
Skipuleggja eigin tíma.
Ná eigin markmiðum í lífinu.
Ljúka skilgreindu námi.
Símatsáfangi þar sem metin er vinna í verkefnum, virkni og þátttaka nemenda í kennslustundum og mæting. Ekki er gefin einkunn heldur „staðið“, „ekki staðið.