Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám getur farið fram í skólanum og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður oft skýrari.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Fjölbreyttum vinnustöðum
Að þjálfun og undirbúningur er mikilvægur áður en farið er út á vettvang
Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
Þeim hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita fjölbreyttu verklagi
Vinna eftir skipulagi
Mæta til vinnu á réttum tíma
Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
Fylgja samskiptareglum á vinnustað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Taka þátt í atvinnulífinu
Vinna verkefni sjálfstætt eða eftir leiðsögn
Hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
Biðja um aðstoð ef þess þarf
Tilheyra starfsmannahópi
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.