Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Námið er að hluta til bóklegt nám og að hluta til fer námið fram í vettvangsferðum. Farið verður yfir samskiptareglur, öryggis og umhverfismál, réttindi og skyldur og hættur í umhverfinu. Í vettvangsferðum kynnast nemendur helstu atvinnutækifærum í umhverfinu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á m.t.t. atvinnuþátttöku.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Fjölbreyttum vinnustöðum í nærumhverfinu
Tilgangi starfs og mikilvægi þess í tengslum við önnur störf
Viðeigandi framkomu í vettvangsferðum
Hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að fara í vettvangsferðir og kynna sér sérsvið hvers staðar
Sækja sér upplýsingar um nýja og framandi vinnustaði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Þekkja mismunandi vettvangsstaði og átta sig á hlutverkum þeirra
Mikilvægi þess að mæta stundvíslega
Fara í vettvangsferðir út frá námslegum markmiðum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.