Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á kynfræðslu í þeim tilgangi að nemendur viti hvað felst í kynheilbrigði og að þeir öðlist jákvæðan skilning á kynlífi og öðlist hæfni til að viðhalda eigin kynheilbrigði. Stuðlað verður að því að nemendur læri að taka ábyrgar ákvarðanir á líðandi stundu og í framtíðinni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Vexti og þroska líkamans
Hugtökum um líkamshluta og kynlíf
Að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt
Mikilvægi kynheilbrigðis
Algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
Tjá skoðanir sínar
Þekkja eigin líkama
Eiga viðeigandi samskipti, sem einkennast af virðingu, við einstaklinga af báðum kynjum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
Láta skoðanir sínar í ljós
Vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.