Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1463754561.69

    Heilsusálfræði
    SÁLF3HE05(MA)
    61
    sálfræði
    heilsusálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    MA
    Helstu raskanir á geði og persónuleika verða kynntar. Farið er yfir greiningarviðmið, sjúkdómavæðingu og samfélagsbreytingar sem gætu ýtt undir raskanir. Persónuleikinn, þróun hans og áhrif áfalla á fólk verða skoðuð svo og jákvæðir þættir sem geta viðhaldið góðri geðheilsu. Hugað verður að aðstæðum og atburðum sem hafa afgerandi áhrif á andlega heilsu og lífsgæði manna. Meðferð raskana og möguleg lækning skoðuð. Mismunandi skýringar á eðli og orsök geðsjúkdóma verða kynntar sem og áhrif vímugjafa á sálarlífið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að beita vísindalegum aðferðum við rannsóknir
    • helstu kenningum um geðsjúkdóma og geðheilbrigði
    • sértækum hugtökum og kenningum
    • framlagi greinarinnar til vísinda og samfélags
    • hagnýtu gildi jákvæðra þátta sem stuðla að góðri geðheilsu
    • fræðilegum útskýringum á geðröskunum og persónuleikavandkvæðum
    • siðferði við rannsóknir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu grunnhugtökum um geðraskanir
    • útskýra helstu hugmyndir sem uppi eru um geðheilbrigði
    • lýsa helstu frávikum varðandi geðheilbrigði
    • lýsa hefðbundnum stefnum í sálfræði sem tengjast geðheilbrigði
    • skoða samhengi andlegar heilsu og lífsgæða
    • nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
    • lesa í og skilja niðurstöður mikilvægra rannsókna í sálfræði
    • miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sækja þekkingu úr öðrum greinum til aukins skilnings á viðfangsefninu og yfirfæra þekkingu á aðrar greinar til þess að sjá vísindalegt samhengi
    • vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
    • sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum
    • afla, meta og nota heimildir á viðurkenndan hátt
    • sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    • beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.