Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464167586.43

    Hárblástur 2
    HBLÁ3FB02(BH)
    1
    Hárblástur
    Hárblástur
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    BH
    Nemandinn öðlast aukna færni í klassískum dömublæstri auk ýmiskonar tískublásturs. Unnið er með ýmsar hárlengdir og form fyrir dömur og herra. Nemandinn kynnist og notar ýmis blásturs- og hármótunarefni og hitajárn þar sem við á.
    HBLÁ2FB01AH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi aðferðum við að ná fyrirfram ákveðnu blástursformi.
    • að blása stífan rúllublástur í ákveðið form.
    • mismunandi áhöldum og efnum til blásturs.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • blása dömu og herrahár í fyrirfram ákveðin form.
    • blása stífan dömublástur.
    • blása tískublástur dömu og herra.
    • velja viðeigandi hármótunarefni fyrir blástur og eftirmeðhöndlun.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • blása/forma herrahár í mismunandi form.
    • blása dömublástur eftir óskum viðskiptavinar.
    • sjá út og framkvæma þann blástur sem hæfir viðskiptavini.
    • velja mótunarefni við hæfi.
    • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
    Símat.