Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464184120.87

    Hárgreiðsla og blástur 3
    HÁRG2GB03(CH)
    2
    Hárgreiðsla
    Grunnbraut
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    CH
    Nemandinn kynnist hugmyndum, tækni og aðferðum á bak við uppbyggingu og formgerð greiðslna á síðu hári. Hann lærir að blanda saman margvíslegri tækni, með notkun á rúllum, bylgjum og ýmsum hitatækjum. Kenndar verða léttar greiðslur í mismunandi hárlengdir, unnið með hnúta, slaufur, pulsur og fléttur. Kynnt verða ýmis tímabil og tískustraumar í hársögunni og kennt að útfæra greiðslur við mismunandi tækifæri með hjálp verklýsinga. Nemandi vinnur bæði með æfingahöfuð og módel.
    HÁRG2GB02BH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • upprúlli miðað við fyrirhugaða útkomu, bæði á síðu og stuttu hári.
    • mismunandi formi á bylgjugreiðslum.
    • notkun bylgjugreiðu og klípa.
    • mismunandi aðferðum við blástur.
    • vali og notkun mótunarefna.
    • notkun hitajárna.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja og nota rúllur sem hæfa fyrirhugaðri útkomu og greiða hár á æfingahöfði og módeli samkvæmt fyrirfram ákveðnu formi.
    • gera eigin verklýsingar og fara eftir þeim við hárgreiðslu.
    • greiða blautbylgjur og setja í klípur.
    • setja klípur í heilt höfuð með eða án skiptingar.
    • greiða úr svo út komi bylgjur.
    • blása og krulla samkvæmt kennslukerfi.
    • beita grunntækni við gerð greiðslna.
    • blása dömu- og herrahár eftir fyrirfram ákveðnu formi.
    • blása stífan rúllublástur í fyrirfram ákveðið form.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera skiptingar og upprúll miðað við fyrirhugaða útkomu.
    • framkvæma einfaldar greiðslur með tilliti til forms, áferðar og heildarútlits.
    • móta bylgjur í hár með blæstri, klípum og vatnsliðun.
    • ná tökum á sígildu formi í dömu- og herrablæstri.
    • framkvæma dömublástur eftir óskum viðskiptavinar.
    • ráðleggja viðskiptavini um val á blæstri við hæfi.
    Símat.