Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464185828.33

    Hárgreiðsla 2
    HÁRG3FB04(EH)
    1
    Hárgreiðsla
    Hárgreiðsla
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    EH
    Nemandi nýtir sér áunna færni frá fyrri stigum námsins til að efla fagmennsku og sjálfstæð vinnubrögð í mótun á blautbylgjum og mismunandi upprúlli með klípum ásamt úrgreiðslu. Ennfremur öðlast hann frekari færni og sjálfstæði í daggreiðslu, brúðargreiðslu og sölulegum samkvæmisgreiðslum. Leitast er við að efla listrænan skilning á handverkinu sem nýtist nemandanum við hinar ýmsu aðstæður. Nemandinn þjálfast í að leysa ólík verkefni sem lögð eru fyrir hann.
    HÁRG2FB03DH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi upprúlli og úrgreiðslum miðað við fyrirhugaða útkomu.
    • mismunandi stíl og stílbrigðum á hárgreiðslum.
    • áhöldum og efnum sem notuð eru við hárgreiðslur.
    • mismunandi úfærslum á tískugreiðslum í stuttu og síðu hári.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útfæra greiðslur í mismunandi hárgerðir og hárlengdir.
    • hanna og greiða mismunandi, sölulegar greiðslur.
    • gera ólíkar útfærslur af bylgjum og tímabilagreiðslum.
    • velja og beita viðeigandi efnum og áhöldum sem þarf til að ná þeirri útkomu sem krafist er.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita mismunandi aðferðum við hönnun, undirbúning og úrgreiðslu hárs.
    • finna lausnir til að ná fram þeirri útkomu sem óskað er.
    • leiðbeina viðskiptavinum um persónulegt val á greiðslu við ólík tækifæri.
    • geta unnið sjálfstætt og innan ákveðins tíma.
    • geta lýst og kynnt verk sín í máli og myndum.
    • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
    Símat og lokaverkefni.