Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464186507.78

    Hárlitun 1
    HLIT1GB01(AH)
    1
    Verkleg hárlitun
    Grunnbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    AH
    Nemandinn lærir um lögmál litanna og einkenni þeirra og fræðist um helstu áhöld og efni sem notuð eru til hárlitunar. Farið er í litafræði og kennt að lesa á liti. Kennd eru grunnatriði á íburði litar s.s. litur í rót, heillitur og strípur og gerð litaverklýsinga. Lögð er áhersla á mikilvægi smitvarna og helstu öryggisþátta. Unnið er með hártoppa og æfingahöfuð.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ýmsum hugtökum sem tengjast litafræði og litun.
    • litaspjöldum og notkun þeirra.
    • grunnlitum og blöndunarlitum.
    • notkun og umhirðu áhalda sem notuð eru við hárlitun.
    • gerð litaverklýsinga og tilgangi þeirra.
    • helstu smitleiðum og öryggisþáttum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina náttúrulit viðskiptavinar út frá litaspjaldi.
    • blanda hárlit samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
    • lesa og skilja litaspjöld.
    • þekkja tóna í háralit.
    • gera litaverklýsingar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja mismunandi gerðir lita eftir litaspjöldum.
    • bera lit í rót og heillita hár.
    • gera einfaldar strípur.
    Símat.