Lýsing á áfanga og kennsluþáttum:
Meginefni áfangans er hreyfing, næring og geðheilbrigði. Unnið er með grunnþjálfun í hreyfingu. Fæðuflokkar og næring er skoðuð í samhengi þar sem fjölbreytni í fæðu er í fyrirrúmi. Skoðaðar eru rannsóknir og greinar sem sýna fram á gildi hreyfingar og næringar á geðheilbrigði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhrifum matarræðis á líkama og sál
helstu næringarefnum og hvaða áhrif þau hafa á líkamsstarfsemi
áhrifum líkamsræktar á geðheilsu
gildi hreyfingar sem mikilvægs þáttar í heilbrigði í víðum skilningi þess orðs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
halda matardagbók
velja sér fjölbreytta næringu
viða að sér fræðilegu efni um geðheilbrigði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa úr matardagbók með aðstoð kennara
geta greint fæðuflokkana í máltíðum
þekkja leiðir til að styrkja og efla gott geðheilbrigði
geta brugðist við einkennum hjá sjálfum sér eða félögum þegar andlegra erfiðleika verður vart
nota fjölbreytta hreyfingu sér til heilsubótar
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.