Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464270275.05

    Framhaldsáfangi - Hreyfing og eigin þjálfun
    HEIL1HÞ01(MA)
    30
    heilsa, lífsstíll
    hreyfing og eigin þjálfun
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    MA
    Meginefni áfangans er að nemendur geti skipulagt eigin grunnþjálfun, kynnist og tileinki sér mismunandi æfingaform og vinni sjálfstætt.
    HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjölbreyttum æfingum og æfingaformum
    • mikilvægi fjölbreyttrar þjálfunar og að allur líkaminn þarfnast þjálfunar á mismunandi hátt
    • uppbyggingu æfingaáætlana til eigin þjálfunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna æfingar og prófa þær
    • vinna sjálfstætt
    • búa til eigin æfingaáætlun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir styrkleikum og veikleikum hvað varðar líkamlega eiginleika
    • vinna eftir eigin æfingaáætlun
    • geta brugðist við með breyttri áætlun ef líkamlegar forsendur breytast eins og t.d. meiðsli
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.