Meginefni áfangans er að sinna fjölbreyttri grunnþjálfun og hreyfingu í gegnum leiki. Farið er í skyndihjálp með sérstakri áherslu á endurlífgun og íþróttameiðsli.
HEIL1HL02 eða HEIL1HN02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að geta brugðist við þegar komið er að slysstað
einkennum meiðsla við íþróttaiðkun, geta greint þau og brugðist skynsamlega við
fjölbreyttri grunnþjálfun, þol, styrk og liðleika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forgangsraða á slysstað
beita endurlífgun
bregðast rétt við dæmigerðum íþróttameiðslum
vinna með mismunandi aðferðir til að sinna grunnþjálfun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
kalla eftir aðstoð á slysstað, bregðast rétt við aðstæðum og gera sitt besta til að bjarga mannslífum
beita réttum aðferðum við bráða íþrótta- og álagsmeiðslum
stunda hreyfingu sér til heilsubótar og ánægju bæði innan og utan skóla
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.