Áhersla er á jafnrétti og mannréttindi og aðstæður og umhverfi ungs fólks skoðað í fjölbreyttu samhengi. Nemandinn er hvattur til að velta fyrir sér hugtakinu mannréttindi og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgara við að móta samfélag sitt og hafa áhrif á það.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtakinu mannréttindi
að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
að í lýðræðisríki þurfa borgarar að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
fjölbreytileika og fjölmenningu
eigin tilfinningum og skoðunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita gagnrýninni hugsun
virða skoðanir annarra
taka þátt í umræðum
láta skoðanir sínar í ljós
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu mannréttindi
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.