Grunnþættir áfangans eru ritun, munnleg tjáning, lestur, bókmenntagreining, saga málsins og málstefna. Lesin er ein nútímaskáldsaga og tvær til þrjár smásögur. Sögurnar eru teknar til umfjöllunar og aðferðum bókmenntafræðinnar beitt. Fjallað verður um helstu þætti málsögu og hljóðfræði kynnt. Nemendur vinna að sjálfstæðri rannsókn og kynna verk sín. Ýmis ritunarverkefni eru unnin í tengslum við námsefnið.
Náttúru- og menningarlæsi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hljóðfræði og hljóðmyndun nútímamáls
meginþáttum í sögu íslensks máls og málstefnu
eðlisþáttum smásagna og skáldsagna
undirstöðuatriðum í framsögn, framkomu og upplestri ritaðs máls
uppbyggingu mismunandi texta
mismunandi málfari í fjölmiðlum
helstu hugtökum í ritgerðasmíð
málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
orðaforða sem nægir til að skilja íslenskt nútímamál í ræðu og riti
mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta ásamt grunnhugtökum bókmenntafræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
koma fyrir sig orði á viðeigandi hátt
gera grein fyrir skoðunum sínum og annarra
byggja upp texta
lesa bókmenntir sér til gagns og geta greint öðrum frá því
meta málnotkun og taka afstöðu til hennar
nota viðeigandi hjálpargögn á markvissan hátt við frágang ritsmíða
nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni
skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli
draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tileknum málefnum
lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk jafnt sem nytjatexta og fjalla um inntak þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
flytja mál sitt frammi fyrir áheyrendum
greina bókmenntir og beita grunnhugtökum við það
greina aðalatriði í texta
vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna tilbrigði í málnotkun
styrkja eigin málfærni til dæmis með því að nýta málfræðiupplýsingar í handbókum
beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
túlka ólíka texta
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.