Heimilisfræði með áherslu á mat á menningu frá öðrum löndum
HEFR1MM02
13
Heimilisfræði
Matur og menning frá öðrum löndum
Samþykkt af skóla
1
2
Áhersla er lögð á mat og matarmenningu nokkurra þjóða. Nemendur fræðast um sögu og uppruna matarins og hvernig hefðir, menning, trúarbrögð, lega landa, landsvæði og fleira getur haft áhrif þar á. Nemendur kynnast fjölbreyttu hráefni og þjálfast í að matreiða rétti frá ýmsum löndum. Lögð er áhersla á að nemendur beri virðingu fyrir menningu og hefðum annarra þjóða. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra. Auk þess verður fjallað um þrif og hreinlæti.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtakinu matarmenningu og hversu misjöfn hún getur verið
Mismunandi sögu þeirra landa sem unnið er með hverju sinni
Uppruna matar í daglegu lífi í mismunandi löndum
Mikilvægi hefða í mismunandi löndum
Að vinnuferlið er alls staðar mikilvægt
Umburðarlyndi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
Sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa úr og nota mismunandi uppskriftir frá ólíkum löndum og menningu
Beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
Nota óhefðbundinn og ný hráefni á mismunandi átt
Skoða eigin neysluvenjur með tilliti til neysluvenja fólks í öðrum löndum
Vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Kynnast nýjum matarhefðum og nýrri matarmenningu
Matbúa nýjar og framandi uppskriftir frá öðrum löndum
Smakka og borða nýjan og framandi mat frá öðrum löndum
Ræða málin og vera óhæddur að leita nýrra leiða
Vera meðvitaður um eigin neysluvenjur og geta borið þær saman við aðrar
Þekkja styrkleika sína og geta nýtt þá á jákvæðan hátt
Vinna með öðrum og sjálfstætt
Vita að þekkingarleit og sköpunarferli eru ekki síður mikilvæg en svör og niðurstöður
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.