Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464875824.91

    Heimilisfræði með áherslu á hollustu og velferð
    HEFR1HO02
    18
    Heimilisfræði
    Hollusta og velferð
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áhersla er lögð á hollustu, fjölbreytt fæðuval, samsetningu fæðutegunda, fæðuhringinn og velferð nemenda. Einnig verður farið í heimilisþrif og meðferð eiturefna á heimilum. Í áfanganum fá nemendur einnig að velja sér verkefni.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi hollrar næringar og á fjölbreyttu fæðuvali
    • Fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar
    • Áhrifum fæðunnar á líkamann
    • Sjálfstæðum vinnubrögðum
    • Samvinnu og verkaskiptingu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skipuleggja eigin fæðu yfir daginn með tilliti til hollrar næringar og fjölbreytts fæðuvals
    • Lesa utan á umbúðir og sjá hvaða hráefni er í vörunni
    • Sjá úr hvaða fæðuflokkum maturinn er
    • Breyta uppskriftum til að gera þær hollari og prófa þær
    • Búa til innkaupalista og fara í innkaupaferðir
    • Vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skipuleggja fjölbreyttan og næringarríkan matseðil
    • Elda hollan og fjölbreyttan mat
    • Vinna með öðrum
    • Skipuleggja matseðil og kaupa inn
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.