Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1464883819.96

    Starfsnám á vinnustað C
    STAR1SA04
    33
    starfsnám
    Starfsnám á vinnustað 1
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Fjölbreyttum vinnustöðum
    • Fjölbreyttum starfsheitum
    • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
    • Mæta til vinnu á réttum tíma
    • Fylgja fyrirmælum
    • Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
    • Fylgja samskiptareglum á vinnustað
    • Fylgja öryggisreglum á vinnustað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í atvinnulífinu
    • Hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang
    • Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
    • Tilheyra starfsmannahópi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.