Unnið er með þá þætti sem stuðla að góðri líðan og eflingu sjálfsmyndar. Nemendur kynnast ýmsum þáttum sem tengjast geðheilsu og geðvernd. Unnið verður með mikilvægi góðra lifnaðarhátta og tengsl þeirra við geðheilsu fólks.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Áhrifum hollra lífshátta, mataræðis, hvíldar, svefns, hreyfingar og ákveðins skipulags á eigið geðheilbrigði
Einkennum vanlíðunar
Þeim úrræðum sem nemendur geta leitað í þegar þeim líður illa
Áhrifum góðrar sjálfsmyndar á eigið geðheilbrigði
Áhrifum góðra samskipta á eigið geðheilbrigði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Fara eftir ráðleggingum varðandi holla lífshætti, fæðuval og hreyfingu
Leita eftir aðstoð þegar vanlíðan gerir vart við sig
Efla sjálfsmynd sína
Eiga gefandi félagsleg samskipti við aðra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Lifa heilsusamlegu lífi
Gera sér grein fyrir eigin líðan og leita aðstoðar eftir þörfum
Vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi einstaklingum
Ræða opinskátt um geðheilsu almennt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.