Áhersla verður á peninga og gildi þeirra. Unnin verða mismunandi verkefni, farið í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn nýttur og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Íslenskum peningum
Gildi og meðferð peninga
Að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Borga og/eða taka við viðeigandi peningaupphæðum
Þekkja íslenska peninga
Nýta sér og/eða vinna með peninga í víðu samhengi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta sér peninga í athöfum daglegs lífs
Framkvæma greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli við útgjöld
Nýta sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
Átta sig á hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.