Áhersla verður á verðútreikninga, verðsamanburð, verðgildi og þjálfun nemenda í að lesa á verðmiða í verslunum. Farið verður í gildi peninga ásamt verklegum æfingum í búðarferðum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hvernig heimilisinnkaup fara fram
Gildi peninga
Fjölbreytileika verslana
Mikilvægi innkaupalista
Að lesa verðmiða og kassakvittanir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nýta sér innkaupalista
Nota peninga eða kort
Lesa á verðmiða
Fara í mismunandi verslanir
Fara yfir kassakvittun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Búa til innkaupalista
Versla inn fyrir heimili
Gera verðsamanburð
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.