Nemandinn samþættir kunnáttu og færni frá fyrri stigum námsins. Hann eflir fagmennsku og sjálfstæði í vinnubrögðum við herraklippingar þannig að útkoman hæfi viðskiptavini hverju sinni. Einnig lærir hann að ráðleggja um val á mótunarvörum við hæfi. Efld er þekking á verklýsingum og að vinna eftir verklýsingum annarra.
Verkefnin eru unnin á módelum.
HHER2FB03AH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tískulínum og útfærslum þeirra.
hinum ýmsu vörum sem notaðar eru til hármótunar og frágangs.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
klippa herraklippingu/tískulínur á módeli út frá eigin verklýsingu.
klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
vinna eftir verklýsingum annarra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.
ráðleggja um form á klippingum með hliðsjón af líffræðilegum þáttum.
beita fjölbreyttum aðferðum og tækni við klippingu og þynningu.
vinna eftir verklýsingu.
ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.