Farið er í ýmsa hagnýta hluti sem tengjast starfinu t.d. grunnþætti er varða starfsánægju, starfshvatningu, starfsmannaviðtöl, mun á launþega og verktaka og hvernig brugðist er við erfiðum viðskiptavinum. Ennfremur er farið í almenna upprifjun til undirbúnings fyrir bóklegt sveinspróf.
Kynnt notkun og umhirða hárkolla, hártoppa og hárlenginga.
Nemendur framkvæma lokaverkefni sem endurspeglar námið í heild.
Nemendur læra samvinnu við aðrar fagstéttir og vinna að undirbúningi og frágangi lokaverkefnis sem tengist td. ljósmyndun og/eða hársýningu í samvinnu við aðrar fagaðila innan skólans og utan.
IÐNF2FB03DH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun og umhirða hárkolla, hártoppa og hárlenginga.
samvinnu við aðrar fagstéttir.
mikilvægi samvinnu við td.ljósmyndara og förðunarfræðinga í að hanna sínar eigin tísku/hár ljósmyndir/sýningu.
hönnun og uppsetningu á lokaverkefni.
helstu þáttum er viðkoma starfsframa/ starfsánægju hans.
skapandi framsetningu myndefnis og texta.
mismunandi aðferðum til að kynna sjálfan sig á faglegan hátt.
muninum á því að vinna sem verktaki, launþegi eða í stólaleigu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna að samvinnuverkefnum með ólíkum fagaðilium.
koma fram, kynna sig og verk sín.
skipuleggja sig og framkvæma eftir því.
setja fram efni á faglegan og skapandi hátt.
búa til kynningarefni á mismunandi máta.
koma hugmyndum sínum á framfæri við aðra fagaðila svo sem ljósmyndara og förðunarfræðinga og vinna með þeim.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og framkvæma lokaverkefni.
þroskast í starfi og vinna að starfsframa sínum.
vinna undir álagi og tímapressu.
svara fræðilegum spurningum sem varða fagið og/eða afla sér upplýsinga til þess.
velja sér miðil sem hentar framsetningu á lokaverkefninu.
vinna hönnunarvinnu í samvinnu við mismunandi fagaðila.