Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Hreyfing - starfsbraut
Almenn líkams og heilsurækt, íþróttir
B
Kennslan fer fram utandyra og inni í íþróttasal. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvað almennt heilbrigði er
- mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshóp
- mikilvægi heilbrigðs lífsstíls sem inniheldur hreyfingu
- mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
- fjölbreyttum þjálfunaraðferðum innan þols, styrks og liðleika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skipuleggja æfingatíma sinn (upphitun, aðalhluti og niðurlag)
- iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
- setja sér raunhæf hreyfimarkmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
- nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
- viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.