Almenn líkams og heilsurækt, íþróttir og líkamsrækt
Samþykkt af skóla
1
2
B
Kennslan fer að mestu fram inni í íþróttasal en einnig í ræktinni og svo þegar nær dregur vori verða kennslustundirnar einnig utandyra. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshóp
mikilvægi heilbrigðs lífsstíls sem inniheldur hreyfingu
mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
fjölbreyttum þjálfunaraðferðum innan þols, styrks og liðleika
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja æfingatíma sinn (upphitun, aðalhluti og niðurlag)
iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
setja sér raunhæf hreyfimarkmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.