Áfanginn er verklegur og fer fram í íþróttasal eða utandyra. Áhersla er lögð á grunnþættina þol, styrktaræfingar og liðleika. Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun og leikir. Leitast verður við að æfingar hæfi getu og áhuga hvers og eins. Farið verður í æfingar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd. Gerðar verða teygjuæfingar í lok kennslustundar og farið yfir mikilvægi þeirra.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
hvað reglubundin hreyfing getur verið góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
nota aðferðir til að mæla þol, styrk og liðleika
nýta snjalltækni til að kortleggja útivistina
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.